Lokahóf

28. júlí 2006 klukkan 11:13
Það er siður hjá öllum liðum að halda lokahóf eða uppskeruhátíð þegar tímabil eru búinn. Þetta hefur reyndar aldrei gengið eftir hjá Bónusliðinu en vona ég að það verði breyting á núna.

Höldum síðunni aðeins lengur gangandi og endilega commenta hér fyrir neðan með allar hugmyndir með hvenær og hvar væri best að gera þetta.

Þó leiðinlegt sé þá held ég að það verði aldrei hægt að halda þetta þannig að allir komist en það er nauðsynlegt að fá sér vel af bjór, vodka, rauðvín, hvítvín, captein morgan, hot´n sweet, tópas, rauðan ópal, og kannski smá sódavatn handa Binna og Tryggva :)

Framkvæmdarstjórinn
Fréttastofa Bónus FC

Jafntefli í lokaleiknum.

28. júlí 2006 klukkan 11:08
Þá er síðasta leiknum lokið og má segja að það hafi verið hinn skemmtilegasti leikur þó svo að það sé alltaf svekkjandi að missa unnin leik niður í jafntefli. Fyrri hálfleikur var sennilega einn sá besti sem Bónusliðið hefur leikið og tókst liðinu að skora 3 glæsilega mörk öll eftir frábæra spilamennsku. Sem sagt 3-3 lokatölur í þessum frábæra leik.

Ég er ekki alveg viss í hvaða sæti við enduðum í riðlinum, en þetta er besta tímabil Bónusliðsin frá upphafi og vona ég að menn séu klárir í næsta mót að ári.

Framkvæmdarstjórinn
Fréttastofa Bónus FC

Byrjunarliđ í kvöld

27. júlí 2006 klukkan 19:52
Jæja  félagar,

Loksins er ég kominn í tölvusamband en því miður hafði ég ekki aðgang að tölvu á Anfield Road þar sem var að fylgjast með æfingum hjá Liverpool. Ég svo sem lærði nú ekki margt þar en ég er orðinn góður í spænsku.
Jú mikið rétt síðasti leikur er í kvöld og þann leik ætlum við vinna og engar refjar , meiðsli eru ekki til tekinn greina ,jarðarför ekki tekinn til greina svo dæmi séu tekinn. Mér líst vel á byrjunarliðið hjá framkvæmdastjóranum en því miður fyrir hann erum við ekki Sparks Fc í Footballers Wifes,þannig að með nýjum þjálfara koma nýjir siðir.
Byrjunarliðið verður tilkynnt kl.19.45 í Boganum þannig að bið menn að vera á tánum í dag og vera tilbúnir allir sem einn.Að sjálfsögðu eiga menn að beita persónutöfrum fram að þeim tíma til að tryggja sig í liðinu. Einu get ég þó lofað að allir fá að spila sem halda höfðinu upprétt og eru komnir fyrir kl.19.45 í Bogann.


Kveðja ,
T.Gunn hin taplausi.
Fréttastofa Bónus FC

Síđasti leikur mótsins

27. júlí 2006 klukkan 17:21
Jæja þá fer þetta að líða undir lok og er síðasti leikurinn í kvöld kl 20.00 eins og fréttahaukur minntist á hér á undan. Þetta verður erfiður leikur gegn Magna og verða menn að berjast sem ein liðsheild til síðasta blóðdropa.

Það kemur til með að vanta eitthvað af lykilleikmönnum eins og Elías, Ása og Binna D. Einnig verður Ásgeir ekki með en þar sem hann hefur ekki leikið einn einasta leik í sumar fyrir okkur er varla hægt að telja hann með sem einn af lykilleikmönnum.

Líklegt byrjunarlið.


                              Andri

        Haukur    -      Beggi   -    Hilmar

                   Nonni      -     Doddi

                             Tryggvi

Ég legg svo til að eftir leikinn verði rætt um það hvenær lokahóf ætti að vera.

Framkvæmdarstjórinn

Fréttastofa Bónus FC

Lokaleikurinn.

27. júlí 2006 klukkan 04:51
Þá er komið að lokaleiknum þetta árið og er hann á móti Magna( ekki Magna í Rockstar) og er hann kl 20:oo á fimmtudagskveld.
Skora ég á þá kumpána Begga og Tryggva að tilkynna hóp og byrjunnarlið eigi síðar en 12:00 á leikdag svo að menn séu með hlutina á hreinu fyrir leik.

Fréttahaukurinn.
Fréttastofa Bónus FC

Njósnari á ferđ og flugi......................

26. júlí 2006 klukkan 04:34
Heyrst hefur að útsendari Team Bonus sé á austurlandi að leggja snörurnar fyrir gríðarlega efnilegum pólskum markverði með það í huga að leysa yfirvofandi markvarðavandamál liðsins.
Skal það tekið fram að piltur þessi er fjarskildur ættingi Jerzy Dudek sem margir Liverpool aðdáendur ættu að kannast við.
Það er bara að vona að pólverjinn leggji leið sína í Bónus á Egilsstöðum því allir vita að njósnarinn okkar er ekki sá aðili sem ratar hvað best fyrir austan og gæti þess vegna lent í erfiðleikum með að hafa uppi á kauða.

meira síðar....................

Fréttahaukurinn.
Fréttastofa Bónus FC

Fyrrverandi ţjálfi í skýjunum erlendis....

22. júlí 2006 klukkan 00:37
Samkvæmt óþekktum og mjög vafasömum heimildum er okkar fyrrverandi þjálfi með samning í höndunum um að gerast
aðalmarkvörður hjá stúlknaliði Tenerife.
Er hann víst mjög spenntur fyrir þessu svo að allt stefnir í  það að æskudraumur hans um að "meika" það erlendis sé að rætast.

meira síðar............

Fréttahaukurinn
Fréttastofa Bónus FC

Bikarinn náđist ekki heim.........

22. júlí 2006 klukkan 00:28
Team Bonus mætti í gær sprækum Greifadrengjum í fyrstu umferð bikarsins.
Var þetta jafn og spennandi leikur sem endaði 1-1 og þurfti því vítaspyrnukeppni til að ná fram úrslitum.
Þar voru taugar Greifadrengja sterkari og þar lá munurinn og úrslit því samtals 3-2
Óskum við andstæðingunum til hamingju og þökkum fyrir góðan leik.
Annars var það lið Kabótfen Sportveren sem höfðu sigur í mótinu eftir úrslitaleik gegn Strók og óskum við þeim
einnig til hamingju með bikarinn.

meira síðar...............

Fréttahaukurinn.
Fréttastofa Bónus FC

Nýr mađur í brúnni á fréttastofunni.

22. júlí 2006 klukkan 00:12
Í dag var ráðinn nýr penni á fréttastofu Team Bonus.
Er þetta frumraun aðilans bæði á fréttasviðinu sem og tölvuvinnu yfir höfuð.
Viljum við á fréttastofunni bjóða hann velkominn til starfa og hlökkum við til að fylgjast með störfum hans.

F.h Fréttastofu
Fréttahaukurinn
Fréttastofa Bónus FC

Tryggvi ráđinn sem ţjálfri !

17. júlí 2006 klukkan 17:29
Það er staðfest að Tryggvi Gunnarsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá Bónus liðinu og gegnir hann því starfi það sem eftir lifir leiktímabils.

Reyndar hefur ekki verið talað um þetta við Tryggva en það er auka atriði.

Framkvæmdarstjóri
Fréttastofa Bónus FC

Könnun

Ertu sáttur viđ tímabiliđ hjá Bónusliđinu

Auglýsing

Gagnasafn